|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Ólaf Rastrick sagnfræðing að gefnu tilefni um fortíðleika miðborgarinnar en miklar umbreytingar standa nú yfir í miðborg Reykjavíkur sem breyta ásýnd hennar. Ólafur segir frá rannsókn sem byggir á viðtölum við íbúa og vegfarendur um sýn þeirra og afstöðu til eldri húsa og götumynda í miðborginni. Bandaríski tónlistarmaðurinn Kurt Vile og hin ástralska Courtney Barnett eru sálufélagar og senukóngar sem búa sitt hvorum meginn á hnettinum. Þau koma saman á nýrri plötu, Lotta Sea Lice, sem er óður til iðjuleysis, sköpunar og vináttunnar. Davíð Roach Gunnarsson fjallar um plötuna í þætti dagsins. Og fjallað verður um bandarísku hljómsveitina Fleet Foxes sem heldur tónleika á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves í Hörpu á morgun. Og sú hátíð kemur meira við sögu í þættinum í dag, Lestin heimsótti viðburðinn Airwords sem fram fór í BíóParadís í gærkvöld, en þar komu fram skáld og tónlistarmenn og tefldu saman orðum og tónum. Í þættinum í dag verður... |