|
Description:
|
|
„Ég er svartur maður í heimi hvítra,“ söng bresk-úganski tónlistarmaðurinn Michael Kiwanuka fyrir fullu húsi á Iceland Airwaves í Gamla Bíói um helgina. Rýnt verður í lagið í Lestinni í dag. Marteinn Hjartarson, einnig þekktur sem Banger Boy, er af mörgum talinn fremsti taktsmiður Íslands. Hann er 25 ára að aldri og vann sem bílastæðavörður áður en hann fór að framfleyta sér með tónlistinni einni fyrir nokkrum árum. Þórður Ingi Jónsson spjallar við Martein í þættinum í dag. Og sjónvarpsþáttaröðin Stranger Things náði gífurlegum vinsældum þegar hún kom kom fyrir almennings sjónir í fyrra. Nú er komin út önnur þáttaröð sem aðdáendur hafa beðið spenntir eftir. Áslaug Torfadóttir kannaði málið til að sjá hvort nýju þættirnir standast væntingar.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson |