|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að tónlist, bókmenntum og hinsegin fræðum. Vélrænt autotune var áberandi á tónlistarhátíðinni Airwaves nú um helgina. Autotune-tæknin var fundin upp af Dr. Andy Hilberg, sem með ákveðnum kóðum og algóryþmum, bjó til hugbúnað sem lagfærði falskar nótur. Hljómur autotunesins hefur þó átt umdeilda ævi. Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir skoðar sögu autotunesins og spjallar við tónlistarframleiðendurnar Loga Pedro Stefánsson og Arnar Inga Ingason sem standa á bakvið framleiðslu á mörgum vinsælustu lögum dagsins í dag þar sem autotune kemur víða við sögu. Nýjasta tölublað Ritsins er að þessu sinni tileinkað hinsegin fræðum og rannsóknum innan hugvísinda. Ásta Kristín Benediktsdóttir, annar ritstjóra Ritsins, verður gestur Lestarinnar í dag. Sölvi Björn Sigurðsson rithöfundur og þýðandi fjallar um þýðandann Kristján Árnason en á sunnudag var efnt til kaffiboðs í Hannesarholti sem haldið var í tilefni af útkomu bókarinnar Það sem lifir dauðann af er ... |