|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Margréti Bjarnadóttur sem tekur þátt í alþjóðlegu sviðslistahátíðinni Everybodys Spectacular sem hefst síðar í vikunni. Sjónvarpsþáttaröðin American Horror Story hefur hrætt líftóruna úr áhorfendum síðastliðin 6 ár. Nýjasta þáttaröðin, American Horror Story - Cult, þykir þó sú óhugnalegasta til þessa. Áslaug Torfadóttir skoðar ástæðuna fyrir því í þætti dagsins. Einnig verður í Lestinni í dag rætt við Kristján Árnason, prófessor emeritus í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands og fyrrverandi formann íslenskrar málnefndar, um upprun íslenskunnar, sambúð hennar við latínu á miðöldum, í samanburði við sambúð íslensku og ensku nú á dögum. Kristján heldur erindi á degi íslenskrar tungu síðar í vikunni á vegum Miðaldastofu Hásóka Íslands.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson |