|
Description:
|
|
Efni Lestarinnar í dag. „Þúsund kossar'' nefnist ævisagan sem er mest seld hér á landi, samkvæmt nýjasta metsölulista Pennanns-Eymundsson. Þetta er æviminningasaga Jógu sem fjallar aðallega um slys sem hún varð fyrir 19 ára gömul, og eftirmál þess. Eiginmaður hennar, Jón Gnarr, skrifar söguna og gerir það líkt og um sjálfsævisögu sé að ræða, þar sem aðalpersóna bókarinnar er „ég“ - frásögn er í fyrstu persónu. Lestin skoðar í dag söguna í samhengi við Sjálfsævisögu Gertrude Stein frá 1933. Einnig verður rætt við Hjalta Snæ Ægisson bókmenntafræðing um námskeið í Háskóla Íslands sem helgað er Íslendingasögunum en skólinn er nú orðinn hluti af edX, alþjóðlegu og leiðandi neti háskóla sem bjóða opin netnámskeið. Tilgangur þátttöku Háskólans í edX er að auka aðgengi að öflugu og spennandi námi, koma þekkingu innan skólans á framfæri á alþjóðavettvangi og þróa kennsluaðferðir í takt við örar breytingar í tækni og samfélagi. Og Hrafnhildur Þórhallsdóttir rithöfundur heldur áfram að fjalla um ... |