|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Gísla Pálsson prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands um skáldsöguna Loftslag eftir svissneska rithöfundinn Max Frisch sem nýlega er komin út í íslenskri þýðingu Jóns Bjarna Atlasonar. „Ég mun rísa upp í hugarórum þínum - sexý, dauð jómfrú.“ Þetta segir hin fræga Lauren Barri Holstein, eða The Famous Lauren Barri Holstein, sem sýndi verk sitt, Notorious, á alþjóðlegu sviðslistahátíðinni Everybodys Spectacular um helgina. Breska sviðslistakonan verður gestur Lestarinnar í dag. Poppy, eða „Draumsóley“, er tónlistarkona og gjörningalistamaður, og afkvæmi internetsins. Hárið er aflitað, húðin eins og úr vaxi og augun förðuð til að virðast risastór. Með óhefðbundnum hætti hefur poppstirnið Poppy sigrað internetið, aðeins 22ja ára að aldri, Nína Richter segir frá Poppy í þættinum í dag.Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi, þar sem frægt símtal kemur við sögu.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og ... |