|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um sjoppumenningu á Íslandi, en Árni Helgason lögfræðingur skrifar um dauða sjoppunnar í athyglisverðri grein í Kjarnanum. Árni verður gestur Lestarinnar í dag. Þegar Henry Darger, einfari og húsvörður í Chicago-borg, lést árið 1973 fundust í herbergisholu hans, þúsund blaðsíðna ritverk og mörg hundruð málverk. Þar á meðal var myndskreytt skáldsaga upp á 15,145 blaðsíður. Darger er í dag talinn meðal þekktustu utangarðslistamanna heims. Jón Proppé, listheimspekingur, fræðir hlustendur nánar í þætti dagsins um líf og list Dargers. Og Snærós Sindradóttir fjallar um sértrúarsöfnuði, eða „költs“, og múgsefjun, tilefnið er andlát bandaríska glæpamannsins og leiðtoga hinnar svokölluðu Manson-fjölskyldu, Charlies Mansons, en „söfnuðurinn“ myrti níu manns á aðeins fimm vikum sumarið 1969.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson |