|
Description:
|
|
Efni Lestarinnar í dag: Gunnar Theodór Eggertsson fjallar um kvikmyndirnar The Nile Hilton incident eftir sænska leikstjórann Tarik Saleh og Murder on the Oriental Express eftir Kenneth Branagh. Hrafnhildur Þórhallsdóttir heldur áfram að fjalla um það að lifa ljóðinu, í dag flytur hún pistil undir yfirskriftinni: Þú verður að breyta lífi þínu, austurísk/ungverska skáldið Rainer Maria Rilke kemur við sögu hjá Hrafnhildi í dag. Og Poppy, eða „Draumsóley“, er tónlistarkona og gjörningalistamaður, og afkvæmi internetsins. Hárið er aflitað, húðin eins og úr vaxi og augun förðuð til að virðast risastór. Með óhefðbundnum hætti hefur poppstirnið Poppy sigrað internetið, aðeins 22ja ára að aldri, Nína Richter segir frá Poppy í þættinum í dag.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson |