|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að nýrri tónlist og kvikmyndum. Kanadíski tónlistarmaðurinn Denique hefur verið með annan fótinn á Íslandi á síðustu árum. Hann sendi frá sér fyrstu breiðskífu sína í síðasta mánuði. Hún nefnist Shape 1 og er víxlverkandi tónlistar og myndbandsverk. Tónlist hans er innblásin af hinsegin menningu, tækni, tísku og náttúru. Denique verður gestur lestarinnar í dag. Nína Richter fjallar um fyrstu ástina og hvernig hún mótar ef til vill viðhorf okkar til ástarinnar fyrir lífstíð og forritar í okkur varanlegar tilfiningabrautir. Helga Rakel Rafnsdóttir talar um heimildamyndina La Chana sem fjallar um flamengóstjörnu frá Barcelona og á dögunum kom út Plunge, önnur sólóskífa sænsku tónlistarkonunnar Fever Ray sem áður var í The Knife. Platan er í senn aðgengileg og grípandi, persónuleg, pólitísk og kynferðisleg, rafræn erótísk árás á helstu vígi smáborgara, hómófóbíu, feðraveldis og nýlenduhyggju. Davíð Roach Gunnarsson fjallar um plötuna í Lestinni í ... |