|
Description:
|
|
Efni Lestarinnar í dag: Áður fyrr var það hlutverk þjóðfræðinnar, þjóðfræðinga að skýra og túlka hefði, siði og þjóðhætti. Nú í dag virðist þjóðfræðileg sýn á daglegt líf orðin samofin lífi hvers og eins og við öll, eins konar þjóðfræðingar. Valdimar Tr. Hafstein verður gestur Lestarinnar í dag. Rætt verður við hann um síaukna tilhneigingu til túlkunar í samtímanum. Gamanþættir þar sem aðalpersónurnar eru frekar fráhrindandi fólk hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár. Leikkonan Kaitlin Olsen fer þar fremst í flokki ásamt félögum sínum í It's Always Sunny in Philadelphia. Áslaug Torfadóttir horfði á nýjasta þátt Olsen, The Mick og segir frá í Lestinni í dag. Nína Richter fjallar um fyrstu ástina og hvernig hún mótar ef til vill viðhorf okkar til ástarinnar fyrir lífstíð og forritar í okkur varanlegar tilfiningabrautir. Og fjallað verður að gefnu tilefni um hugtakið týpu-álag.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
... |