|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Braga Ólafsson rithöfund sem sent hefur frá sér bókina Öfugsnáða - sögustund. Aukin tíðni slysa í kjölfar vaxandi ferðamannastraums til Íslands er stórt vandamál. Núverandi viðvörunarskilti eru fjölbreytt og ekki nægilega áhrifamikil. Áhyggjuefnið varð kveikjan að verkefninu Hætta/Athugið, skiltakerfi sem grípur athygli ferðamanna og samræmir útlit fyrir íslensk hættuskilti. Höfundur verkefnisins, grafíski hönnuðurinn Ívar Björnsson, verður gestur Lestarinnar í dag. „Það er fátt , sem varir. Tíminn tekur það, tíminn tekur allt og alla“ skrifaði Knut Hamsun, á níræðisaldri í bók sinni Grónar götur. Lestin lokar í dag á bananabull samfélagsmiðla. Í örfáar mínútur verður sett í bakkgír og hlýtt á aldagamalt ljóð frá Ómar Kajam. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
... |