|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að myndlist, og nýrri tónlist: Myndlistarkonan Auður Ómarsdóttir opnar sína níundu einkasýningu í Kjallaranum í dag. Auður vinnur myndlist sína jafnt í blandaða miðla en verk hennar eiga það gjarnan sameiginlegt að verða til út frá efnivið sem er fundinn á einn eða annan hátt. Sýning, sú sem opnar í dag, nefnist Hliðstæður og er samantekt listamannsins af vísbendingum um uppgötvanir sem hún kallar Hliðstæður. Rætt verður við Auði í Lestinni í dag. Það er ekki auðvelt fyrir listamann að skapa sér eigið ídentítet þegar skuggi foreldranna gnæfir yfir gjörvöllu listalífi- og menningarlífi móðurlandsins. En það hefur þó Charlotte Gainsbourg tekist, dóttir Serge Gainsbourg Jane Birkin, bæði sem leikkonu en einnig í tónlistinni eins og heyra má á hennar nýjustu plötu, Rest. Davíð Roach Gunnarsson fjallar um plötuna í Lestinni í dag. Hrafnhildur Þórhallsdóttir heldur áfram að fjalla um það að lifa ljóðinu, skáldið Ísak Harðarson kemur mjög við sögu hj... |