|
Description:
|
|
Efni Lestarinnar í dag: Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason gaf út nýja plötu í gær. Nefnist hún „Margt býr í þokunni“. Þetta er tíu laga fólk-plata. Ólíkt fyrstu þremur breiðskífum hans, eru öll lög sungin á Íslensku, og yrkisefnin af þjóðlegum toga. Snorri verður gestur Lestarinnar í dag. Flest okkar eiga minningu um fyrstu ástina, en hversu djúp eru sporin sem hún markar? Hefur hún áhrif á smekk okkar og makaval fyrir lífstíð? Nína Richter rifjar upp fyrstu ástina og reynir að svara þeirri spurningu. Litið verður við í Listaháskóla Íslands þar sem Verkstæðakvöld skólans verður haldið í fyrsta sinn annað kvöld.Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson |