|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Gunnar Þórðarson tónlistarmann um eina vinsælustu jólaplötu íslenskrar tónlistarsögu, Í hátíðarskapi, sem kom út árið 1980 en lög af henni eru mikið spiluð í útvarpi enn þann dag í dag. Rapparinn Tyler, The Creator, vakti fyrst athygli fyrir hugvitssamlegar taktsmíðar og grófa texta sem oft voru fjandsamlegir konum og samkynhneigðum. Á skífunni Flower Boy sem kom út í ár tók hann algjöru u-beygju í hljóðheimi og textagerð og það skilar honum einni af bestu plötum ársins. Davíð Roach Gunnarsson fjallar um Tyler í Lestinni í dag. Og ólíkleg tískubylgja hefur gripið um sig í poppheiminum vestra en jólaplötuútgáfa er nýjasta æðið, Nína Richter fer yfir nokkur nýútkomin jólalög.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson |