|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að sjónvarpi og kvikmyndum. Hiroshima mon amour frá 1959 eftir Marguerite Duras, í leikstjórn Alain Resnais, skoðar samspil og tengsl persónulegra áfalla einstaklinga og stærri ytri áföll samfélaga í heild. Tímalausar vangaveltur sem Lestin rifjar upp í þætti dagsins. Gunnar Theodór Eggertsson fjallar um nýju Star Wars myndina, The Last Jedi, sem frumsýnd var í síðustu viku. Þýsku sjónvarpsþættirnir Dark hafa verið á allra vörum síðan þeir voru frumsýndir á Netflix núna í byrjun Desember. Áslaug Torfadóttir skoðar í þættinum í dag hvað það er við þessa yfirnáttúrulegu spennuþætti sem hefur hrifið áhorfendur um allan heim.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson |