|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að plötuútgáfu á árinu 2018 og gluggað í grein sem birtist á vef breska ríkisútvarpsins BBC um áramót, þar sem farið er yfir væntanlega útgáfu á árinu, og þær plötur nefndar sem menn á þeim bænum binda mestar vonir við. Sönn, óleyst sakamál hafa verið vinsælt umfjöllunarefni kvikmynda, sjónvarpsþátta og hlaðvarpa að undanförnu. Heimildaþættirnir Wormwood fjalla einmitt um slík mál. Áslaug Torfadóttir fer í rannsóknargírinn í Lestinni í dag. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur að venju pistil í Lestinni á þriðjudegi.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson |