|
Description:
|
|
Efni Lestarinnar: Margra mánaða tónleikaferðalag hljómsveitarinnar Mammút er nú á enda. Ferðalagið hefur staðið yfir frá því hljómsveitin gaf út nýjustu breiðskífuna, Kinder Versions, sem sker sig úr frá fyrri plötum þar sem hún er frumraun bandsins á ensku. Mammút hefur lítið spilað hér heima en halda nú heimkomutónleika í Gamla Bíói annað kvöld. Lestin fræðist nánar um ferðalag síðustu mánaða, og nýjustu plötuna í þætti dagsins. Þær Ása Dýradóttir og Kata Mogensen verða gestir þáttarins. Einnig verður rætt við Ásu Helgu Hjörleifsdóttur kvikmyndaleikstjóra en kvikmynd hennar, Svanurinn, sem byggð er á samnefndri skáldsögu eftir Guðberg Bergsson, verður frumsýnd í kvöld. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar um samfélagsmiðla og styðst meðal annars við hugmyndir manns sem var á dögum löngu fyrir tíma slíkra miðla, danska heimspekingsins og rithöfundarins Sörens Kierkegaards.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
... |