|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um útgáfufyrirtækið Úsland sem hefur sérhæft sig í útgáfu spuna-tónverka á undanförnum árum en nýlega voru allar plötur fyrirtækisins gefnar út í einum pakka. Rætt verður við Albert Finnbogason tónlistarmann og einn aðstandenda útgáfunnar. Tónlistarkonan Sólveig Matthildur gaf nýverið út plötuna Unexplained miseries and the acceptance of Sorrow, sem mætti þýða einhvern veginn svo: Óútskýrðar kvalir og viðurkenning sorgarinnar. Sólveg er kannski betur þekkt sem einn liðsmanna pönk-hljómsveitarinnar Kælan mikla, og einn aðstandenda plötuútgáfunnar Hið myrka man og jaðar-tímaritsins Myrkfælni. Hún býr í Berlín, en eins og fleiri Íslendingar sem búsettir eru erlendis, er hún heima yfir hátíðirnar. Hún hefur útbúið hljóðvers- og æfingaaðstöðu í bílskúr föður síns í Breiðholtinu. Lestin heimsækir umræddan bílskúr, og kynnist Sólveigu og tónlist hennar betur í þætti dagsins. Yrca Roca Fannberg kvikmyndaleikstjóri segir frá kvikmyndinni Manakamana ... |