|
Description:
|
|
Efni Lestarinnar í dag: Gunnar Theodór Eggertsson gagnrýnir kvikmyndina Svaninn eftir Ásu Helgu Hjörleifsdóttur sem frumsýnd var í síðustu viku. Franska söngkonan og fyrrum Eurovision-sigurvegarinn France Gall er látin, 70 ára að aldri. Lestin minnist tónlistarkonunnar í þætti dagsins með Jónatan Garðarssyni og Unni Söru Eldjárn. Black Mirror þættirnir hafa hrætt líftóruna úr kvíðnum áhorfendum síðan 2011 með sýn sinni á framtíð tækninnar. Áslaug Torfadóttir horfði á nýjustu þáttaröðina sem var nýlega frumsýnd á Netflix og segir frá í Lestinni í dag. Og Þórður Ingi Jónsson ræðir við meðlimi hljómsveitarinnar Geisha Cartel sem vinna nú að sinni fyrstu plötu.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson |