|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Egil Örn Jóhannsson, formann Félags íslenskra bókaútgefenda, um bóksölu, og framtíð bókamarkaðar á Íslandi. Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi, og fjallar í dag um það hvað nýjar rannsóknir í sálfræði segja okkur um samband ótta og stjórnmálaskoðana. Og borgin Reykjavík kemur við sögu, að gefnu tilefni í þættinum í dag. Þjóðfræðingurinn og tónlistarkonan Auður Viðarsdóttir segir okkur frá meistararannsókn sinni í þjóðfræði en í henni kannar hún upplifun tónlistarkvenna af notkun tækni í tónlistarsköpun og dregur fram samfélagslegt og menningarlegt samhengi tónlistarsköpunar kvenna. En tækni og tónlist sameina einmitt tvö svið sem hafa langtum verið áberandi karllæg. Tæknin er að sjálfsögðu ekki karllæg í eðli sínu en erfitt hefur þó reynst að breyta stöðluðum hugmyndum okkar um hana. Auður segir okkur nánar frá rannsókn sinni hér á eftir.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
... |