|
Description:
|
|
Lestin flytur meðal annars í dag rúmlega hundrað ára gamla Draugasögu sem rekja má til Páls Jónssonar, fyrrum innheimtumanns hjá Tollskrifstofunni. Þórbergur Þórðarsson, rithöfundur, skrásetti sögu hans árið 1946 og las í útvarpinu á 70 ára afmælisdegi sínum, þann 12. Mars 1959. Við heyrum draugasöguna í þætti dagsins, en við sögu koma huldumenn í lest. Davíð Roach Gunnarsson fjallar um írska raftónlistar-dúettinn Bicep, Karl Ólafur Hallbjörnsson beinir sjónum sínum í dag að ofurgreind og sýndarvíti. Og Björk Níelsdóttir sópransöngkona segir frá tónleikum undir yfirskriftinni Ballöður fyrir brjálæðinga sem fram fara í Norðurljósasal Hörpu um helgina, en þar flytur tónlistarhópurinn Stirni Ensemble suðræn og seiðandi verk sem fá hjörtun til að slá örar, meðal annars eftir Astor Piazolla og Joaquín Turina.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson |