|
Description:
|
|
Á meðal efnis í Lestinni í dag: Á hátíð tónlistar og friðar, Woodstock, árið 1994, söng írska sönkonan Dolores O Riordan með hljómsveit sinni The Cranberries um hverfulleika lífsins og drauma, sem virðast aldrei verða það sem þeim var ætlað. O Riordan andaðist á mánudag, 46 ára gömul, Lestin minnist hennar í þætti dagsins. Við sögu í Lestinni í kemur einnig bandaríski baráttumaðurinn Martin Luther King, en á mánudag var haldinn hátíðlegur vestanhafs dagur sem við hann er kenndur, en King fæddist þann 15. Janúar árið 1929. Einnig verður fjallað um andlitsförðun, bókakisi kemur við sögu, og bresk-bandaríski tónlistarmaðurinn Scott Walker, svo nokkuð sé nefnt.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson |