|
Description:
|
|
Efni Lestarinnar í dag: Cindy Sherman, einn áhrifamesti myndlistamaður samtímans, birtir nú nýjustu verk sín á samfélagsmiðlinum Instagram. Sherman, sem þekkt er fyrir að nota eigið andlit og líkama sem efnivið, nýtir sér vinsæl snjallsímaforrit á borð við FaceTune og Perfect365, við vinnslu sjálfsmyndanna. Lestin rýnir í myndirnar og fjallar að gefnu tilefni um stöðu ljósmyndunar í dag. Spurt verður meðal annars: Hafa mörkin milli atvinnu- og áhugaljósmyndunar máðst út, með fjölgun símtækja, og myndavéla, nú þegar notendur á Instagram eru orðnir rúmlega 700 milljónir? Skoska lista-, skrýti- og hræripoppsveitin Django Django gaf á dögunum út sína þriðju breiðskífu; Marble Skies. Þar halda þeir áfram að þræða hið erfiða einstigi; óþrjótandi tilraunamennsku með ólíkar stefnur og stíla án þess þó að tapa eigin höfundareinkennum. Davíð Roach Gunnarsson fjallar um Django Django í þættinum í dag. Og Soffía Bjarnadóttir rithöfundur fer með hlustendur í ferðalag á bakvið augnlokin.
Ums... |