|
Description:
|
|
Efni Lestarinnar: Á dögunum var fjallað um dauða rokksins Í Lestinni. Nú hafa þrjár stelpur sparkað svo fast í líkið að það rumskar svo um munar, það er bresk-íslenska hljómsveitin Dream Wife sem á dögunum gaf út sína fyrstu breiðskífu sem er samnefnd sveitinni. Platan hefur komið þeim á forsíðu breska blaðsins NME, sem segir að hljómsveitin sé ein þeirra sveita sem muni „eiga“ árið 2018. Davíð Roach Gunnarsson segir frá Dream Wife í Lestinni í dag. Og hraðlestin verður á sínum stað á föstudegi. Á meðal gesta í henni verða Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands, Jón Ólafsson heimspekingur, Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri, ofurhetjan She-Ra, Gunnar Theodór Eggertsson, og rithöfundarnir Halldór Armand Ásgeirsson og Soffía Bjarnadóttir.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson |