|
Description:
|
|
Efni Lestarinnar í dag: Næsta sunnudag hefst hin árlega kristniboðsvika á vegum Kristniboðssambandsins. Undirtitill hátíðarinnar í ár er ,,Fylgdu Jesú'', og virðist hún, af grafík að dæma, eiga að höfða sérstaklega til yngri kynslóðarinnar. Forvitnast verður um starf kristniboða í þætti dagsins, og spurt: Hvernig er að vera kristniboði? Hefur starfið eitthvað breyst á síðustu árum? Hvers vegna að breiða út trú sína? Og ævintýri Tinna halda áfram í Lestinni í dag. Bók dagsins er Tinni í Kongó, bók sem skrifuð var í því andrúmslofti sem ríkti í Evrópu upp úr 1930, þegar öfgakennd þjóðernis- og kynþáttahyggja réð ríkjum - skoðanir sem sumum finnst ganga aftur þessi misserin. Eiríkur Bergmann Einarsson verður gestur Gísla Marteins Baldurssonar í dag, en Eiríkur hefur kynnt sér hugmyndafræði fasisma og hugmyndir um yfirburði hvíta kynstofnsins, sem sjást svo greinilega í Tinna í Kongó, en bókin er bönnuð víða um heim þótt slíkt bann hafi aldrei komið til tals á Íslandi af neinni alvöru. Og ... |