|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um kvikmyndirnar Black Panther eftir bandaríska kvikmyndaleikstjórann Ryan Coogler og The Shape of Water eftir mexíkóska leikstjórann Guillermo del Toro. Einnig verður fjallað um sjónvarpsþættina Altered Carbon sem eru á meðal dýrustu þátta sem framleiddir hafa verið fyrir Netflix. Tinnabók dagsins verður á sínum stað, í dag er röðin komin að Vindlum farós, viðmælandi Gísla Marteins Baldurssonar verður Halla Oddný Magnúsdóttir. Og vetrarólympíuleikar standa nú yfir í PyeongChang í Suður-Kóreu, og þar er meðal annars keppt í skíðastökki. Hugað verður að þeirri íþróttagrein í þættinum í dag.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson |