|
Description:
|
|
Efni Lestarinnar í dag: Bandaríski Avant-R & B tónlistarmaðurinn serpentwithfeet hefur getið sér gott orð síðustu misseri. Hann verður einn þeirra fjölmörgu tónlistarmanna sem koma fram á tónlistarhátíðinni Sónar í næsta mánuði. Lestin skoðar serpentwithfeet nánar í þætti dagsins. Þættirnir Crazy-Ex Girlfriend hafa hlotið einróma lof gagnrýnenda síðan þeir voru frumsýndir fyrir þremur árum en samt virðast margir áhorfendur seinir að taka við sér. Áslaug Torfadóttir veltir fyrir sér ástæðu þessa. Heiða Vigdís Sigfúsdóttir fjallar um listamenn í Mexíkó sem nota tónlist sína til að berjast fyrir mannréttindum í landi þar sem fjölmiðlar eru ekki frjálsir. Og Tinnabók dagsins er Skurðgoð með skarð í eyra, viðmælandi Gísla Marteins Baldurssonar verður Óskar Þór Axelsson.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson |