|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Kristínu Svövu Tómasdóttur rithöfund og sagnfræðing um ógnina sem menn álitu að stafaði af bandarískum hasarblöðum á sjötta áratug síðustu aldar en þau voru meðal annars talin ógna velferð barna og unglinga og stuðla jafnvel að því að þau leiddust út á glæpabrautina. Kristín heldur erindi um efnið á Hugvísindaþingi Háskóla Íslands sem hefst á föstudag, í málstofu sem kennd er við bandarísku bylgjuna, þar sem fjallað verður um bandarísk menningaráhrif á Íslandi og skoðað með hvaða hætti fjallað var um bandaríska list og menningu í íslensku samhengi. Í síbreytilegum heimi þar sem tæknibreytingum og samfélagsbreytingum fleygir fram, er sífellt mikilvægara fyrir hönnuði að rannsaka tiltekin viðfangsefni af dýpt í samtali við aðra fræðimenn og sérfræðinga. Garðar Eyjólfsson, fagstjóri meistaranáms í hönnun við Listaháskóla Íslands, hélt erindi um mikilvægi þess að spekúlera í hönnunarrannsóknum í Listaháskólanum núna um helgina. Lestin fræðist n... |