|
Description:
|
|
Lestin kemur að venju víða við í dag. Í pistli dagsins býður Atli Bollason upp á samkvæmisleik, og spyr: Ef þú hefðir mátt vera á dögum hvar sem er, hvenænr sem er - hvar og hvenær hefðirðu þá verið? Tinnabók dagsins er að þessu sinni Leynivopnið, viðmælandi Gísla Marteins Baldurssonar að þessu sinni verður Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari, blaðamaður og rithöfundur. Og boðið verður upp á hraðlest á föstudegi, þar sem við sögu koma kvikmyndaleikstjórinn Ísold Uggadóttir, umræða um ritskoðun lista, stórhættuleg bandarísk hasarblöð, samtal um mikilvægi þess að spekúra, bláir himnar, og sitthvað fleira.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson |