|
Description:
|
|
Lestin minnist í dag enska vísindamannsins Stephens Hawking sem er látinn, 76 ára að aldri. Hawking var eðlisfræðingur og heimsfræðingur, og höfundur bókarinnar Saga tímans sem kom út árið 1988, og varð mjög vinsæl. Kettir koma við sögu í Lestinni í dag en um síðustu helgi var Officera-klúbburinn í Reykjanesbæ undirlagður af köttum enda var þar haldin Vorsýning Kynjakatta. Lestin fór á staðinn og ræddi við þátttakendur. Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum í dag um óendanleika og tilvist talna. Og Tinnabók dagsins er Vandræði ungfrú Vailu Veinólínó, sem kom út árið 1963, viðmælandi Gísla Marteins Baldurssonar í dag verður Baldur Stefánsson ráðgjafi.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson |