|
Description:
|
|
Efni Lestarinnar í dag: Sónarhátíðin verður sett í sjötta skipti hér á landi á morgun og margir tugir tónlistarmanna og plötusnúða koma fram í Hörpu um helgina. Davíð Roach Gunnarsson rýnir í sögu og sérkenni Sónar, og bendir á nokkra listamenn á hátíðinni sem er vert að bera sig sérstaklega eftir. Gunnar Theodór Eggertsson fjallar um kvikmyndina Andið eðlilega eftir Ísold Uggadóttur sem frumsýnd var í síðustu viku. Og Tinnabók dagsins er Flugrás 714 til Sydney, gestur Gísla Marteins Baldurssonar verður Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og bókmenntafræðingur.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson |