|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um viðhorf samtímans til lista í tilefni af banni Facebook á sunndag á birtingu hins fræga málverks Frelsisgyðjan leiðir fólkið, eftir franska 19. aldar málarann Eugene Delacroix en á því má sjá berbrjósta kvenhetju, þjóðartákn frönsku byltingarinnar, leiða fólkið, vopnuð flaggi. Bannið var reyndar dregið til baka, en segir það okkur þrátt fyrir það, eitthvað um hvernig við umgöngumst listir hér og nú? Og um mátt ritskoðunar á vorum tímum? Ólafur Gíslason listfræðingur verður gestur Lestarinnar í dag. Tómas Ævar Ólafsson fjallar um mismunandir tegundir lögregluhetja, og hefur til hliðsjónar skáldsöguna Infinite Jest eftir bandaríska rithöfundinn David Foster Wallace og Dougie Jones úr sjónvarpsþáttunum Twin Peaks eða Tvídröngum. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur fjallar um áhyggjur í vísindasamfélaginu á því að frumleiki fari dvínandi. Og við rifjum einnig upp plötuna Semper Femina eftir bresku tónlistarkonuna Lauru Marling
Ums... |