|
Description:
|
|
Efni Lestarinnar í dag: Hönnunarráðstefnan DesignTalks var haldin í Hörpu á Hönnunarmars 2018 í síðustu viku. Hópur innlendra og erlendra fyrirlesara úr ýmsum geirum atvinnulífsins kynntu hugmyndir sínar og verkefni, en öll mættu þau áskorunum samtíma og framtíðar með aðferðafræði hönnunar. Nína Richter heimsótti ráðstefnuna og lýsir því sem fram fór í Lestinni í dag. Lauren Auder er nítján ára gamall söngvari og tónlistarmaður sem búsettur er í Lundúnaborg en hann er hægt og bítandi að ryðja sér til rúms í alþjóðlegu tónlistarsenunni. Þórður Ingi Jónsson heyrir í Auder í þætti dagsins. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar um markaðinn sem siðferðilegt og pólitískt athafnasvið.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson |