|
Description:
|
|
Efni Lestarinnar í dag: Vísindafélag Íslendinga hélt um helgina málþing um veirur og vísindasöguna í Safnahúsinu. Þorsteinn Vilhjálmsson, prófessor emeritus, var meðal þeirra sem fluttu þar erindi, en hann fjallaði um sögu íslenskra vísinda síðustu öldina og gagnkvæma víxlverkun vísinda og samfélags. Hlustendur heyra í Þorsteini í þætti dagsins. Requiem, eða Sálumessa, nefnast nýir breskir spennuþættir á Netflix þar sem dularfullt barnshvarf virðist mögulega eiga sér yfirnáttúrulegar skýringar. Áslaug Torfadóttir kannaði málið og segir frá í Lestinni í dag. Og Þórður Ingi Jónsson ræðir við Illuga Magnússon, sem er betur þekktur sem DJ Platurn, og er plötusnúður og skífuskenkjari sem búsettur er í Oakland í Bandaríkjunum. Hann hefur búið þar síðan á níunda áratugnum og tekið virkan þátt í hip-hop senunni þar. Nú nýverið gaf hann út ástríðuverkefnið Breaking the Ice en það er tileinkað gamalli íslenskri dægurlagatónlist. Og fuglar syngja sem aldrei fyrr í Lestinni í dag.
Umsjón: Anna ... |