|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um tékkneska kvikmyndleikstjórann Milos Forman sem andaðist á föstudag, 86 ára gamall. Forman átti að baki langan og glæsilegan feril og var margverðlaunaður, höfundur mynda á borð við Árshátíð slökkviliðsmannanna, Gaukshreiðrið og Amadeus. American Horror Story hefur hrætt líftóruna úr áhorfendum síðastliðin 6 ár. Útgáfufyrirtækið figureight hefur nú tilkynnt um fyrstu útgáfu ársins; ding ding með Indriða sem kemur út 18. maí næstkomandi. Indriði (Ingólfsson) hefur komið víða við í íslensku tónlistarlífi, hefur meðal annars gert garðinn frægann með hávaðarokksveitinni Muck, auk þess sem hann er menntaður myndlistamaður frá LHÍ, og hefur tekið þátt í hinum ýmsu gjörningum. Indriði verður gestur Lestarinnar í dag. Og nýjasta þáttaröðin American Horror Story: Cult þykir ein sú óhugnalegasta til þessa. Áslaug Torfadóttir skoðar í dag ástæðuna fyrir því.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson... |