|
Description:
|
|
Efni Lestarinnar í dag: Högni Egilsson tónlistarmaður kemur í heimsókn, sest við flygilinn, og frumflytur splúnkunýtt lag við ljóð eftir Halldór Laxness, en í dag er afmælisdagur skáldsins, og dagur bókarinnar. Högni mun síðan koma fram á Gljúfrasteini í kvöld, í tilefni dagsins. Við förum síðan í Kringluna og ræðum við fólk um lestraráhuga. Gunnar Theodór Eggertsson fjallar í dag um tvær kvikmyndir, íslensku kvikmyndina Adam eftir Maríu Sólrúnu og The Death of Stalin eftir skoska leikstjórann Armando Iannucci. Og góð tónlist getur fundið hljómgrunn hvar sem er. Og
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson |