|
Description:
|
|
Efni Lestarinnar í dag: #Bergmálsklefinn er ný íslensk ópera um kynjahyggju og opinbert niðurrif á samfélagsmiðlum. Bergmálsklefinn segir sögu fjögurra einstaklinga og frá upplifun þeirra af Twitter; áhorfendum er því dýft ofan í margbreytilegan, fyndinn, dimman og oft absúrd heim samfélagsmiðla þar sem ferhyrnt tjáning hugsana er í formi 140 stafa. Ingunn Lára Kristjánsdóttir, leikstjóri og höfundur verksins, og Ísabella Leifsdóttir, söngkona og framleiðandi Bergmálsklefans, verða gestir Lestarinnar í dag. Einnig verður rætt Ófeig Sigurðsson rithöfund um Jón Steingrímsson eldklerk, en Ófeigur fjallar um hann og skáldsögu sína, Jón, frá árinu 2010, á málþingi sem Félag um átjándu aldar fræði heldur á laugardag undir yfirskriftinni Af sögulegum skáldsögum sem gerast á átjándu og nítjándu öld. Og Léttfönkaða nýsjálenska síkadelísveitin Unknown Mortal Orchestra gerir út frá hipster-höfuðborginni Portland og var að gefa út sína fjórðu breiðskífu á dögunum, plötu sem ber hinn óflúraða grunn... |