|
Description:
|
|
Fyrir nákvælega hálfri öld síðan, þann 3. maí árið 1968 hófust stúdentaóeirðirnar í París, mótmæli sem voru kröftug að Evrópa og heimskapítalisminn nötraði. Við heyrum í Einari Má Jónssyni sagnfræðingi sem var staddur í París þennan áhrifamikla mánuð fyrir fimmtíu árum síðan. „Nýr peningaseðill byrjar sem autt blað og endar sem flókin prentflétta með tiltekinni áferð. Hönnunin gengur út á að fólk átti sig á því að það er með verðmæti í höndunum og þekki seðilinn frá öðrum slíkum.“ Þetta segir Kristín Þorkelsdóttir, grafískur hönnuður og myndlistarmaður en hún hannaði meðal annars alla þá peningaseðla sem nú eru í umferð. Við heimsækjum listakonuna í þætti dagsins, skyggnumst meðal annars á bak við gerð peningaseðlanna. Gunnar Theodór Eggertsson skellti sér síðan í bíó og sá Avengers: Infinity Wars. Hann rýnir í nýjustu Marvel ofurhetjukvikmyndina í þætti dagsins. |