|
Description:
|
|
Eftir tæpa tíu daga hefst hátíð íslenskra heimildamynda - Skjaldborg á Patreksfirði. Þær Helga Rakel Rafnsdóttir og Halla Kristín Einarsdóttir, skipuleggjendur hátíðarinnar, verða gestir okkar í þætti dagsins. Pottaplöntur njóta sífellt meiri vinsælda í innanhúshönnun, þær lífga upp á heimilið eða vinnustaðinn, bæta andrúmsloftið og eru einstaklega instagram-vænar. Fyrir marga borgarbúa samtímans, og ekki síst þá sem eru af þúsaldarkynslóðinni, eru pottaplöntur sú náttúra sem þeir eiga í hvað nánasta samlífinu með. Loji Höskuldsson er einn þeirra myndlistarmanna sem hefur tekist á við þessa nýju náttúruskynjun í verkum sínum. Við ræðum við Loja um pottaplöntur, garða og tilbúna náttúru. Í pistli sínum fjallar Karl Ólafur Hallbjörnsson um hugtakið "menningarmarxisma" og almenna notkun þess í pólitískri orðræðu, ekki síst eins og hún birtist á netinu. |