|
Description:
|
|
Í lestinni í dag verður meðal annars hugað að kjólum, nýjum en þó gömlum sjónvarpsþáttum og fjölmenningarlegum marbreytileika.
Gamanþættirnir Arrested Development voru fyrst sýndir árið 2003 og gengu á sjónvarpsstöðinni Fox í þrjár þáttaraðir. Þrátt fyrir að vera vinsælir meðal gangrýnenda var áhorf á þá lítið og því ákvað Fox að taka þá af dagskrá. Þættirnir áttu sér þó alltaf gallharða aðdáendur og sífelt fjölgaði í þeim hópi eftir því sem fleiri uppgötvuðu þá og öðluðust þeir fljótt költ-status sem einhverjir bestu gamanþættir sögunnar. Netflix gerði samning um framleiðslu á þáttunum árið 2013 og hefur streymisveitan nú gefið út tvær þáttarraðir. Áslaug Torfadóttir, sjónvarpsrýnir Lestarinnar, rýnir í nýjustu þáttaröðina, þá fimmtu, sem frumsýnd var á dögunum.
Einn af af hverjum tíu íbúum Íslands í dag er innflytjandi, aðfluttur Íslendingur. Íslensk stjórnmál og valdastofnanir landsins eru þó ekki enn farnar að sýna slíkan fjölmenningarlegan margbreytileika. Við ræðum við Guðrú... |