|
Description:
|
|
Í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis Íslands var efnt til ráðstefnu um rapp og hipp hopp í Veröld - húsi Vigdísar. Þar var fjallað um rapp sem listform og danskir og íslenskir listamenn munu koma fram. Ráðstefnan breyttist síðan í tónleika þar sem bæði íslenskir og danskir rapparar tróðu upp. Við segjum örlítið frá efni fundarins og veltum fyrir okkur íslensku rappi, hvað eru íslenskir rapparar að segja?
The Alienist eru nýir spennuþættir sem gerast í New York um aldamótin 1900 þar sem sturlaður raðmorðingi gengur laus. Áslaug Torfadóttir hætti sér í heimsókn og rýnir í þættina í dag.
Þjóðhátíðardagur Íslendinga, 17. júní, var í gær. Hátíðarhöld fóru fram um land allt venju samkvæmt og rigningin buldi að hefðbundnum sið. Á Austurvelli voru ræður í pontu, skátar báru fána, Jón Sigurðsson hylltur og Fjallkona klæddi sig skautbúningi og flutti ljóð - Sigrún Edda Björnsdóttir flutti ljóð eftir Lindu Viljhjálmsdóttur. Fjallkonan var þó ekki ein. Í fyrsta sinn í sögunni voru fjallkon... |