|
Description:
|
|
Tónlistahjónin Beyoncé og Jay Z læddust heldur betur upp að heiminum um helgina, eins og venjan er orðin í tónlistarheimi samtímans. Þau gáfu út sameiginlega 9 laga plötu undir listamannaheitinu The Carters og er það fyrsta platan sem þau gefa út í heild. Um helgina frumsýndu þau nýtt tónlistarmyndband við lagið heitir Apeshit og myndbandið heldur betur eitthvað fyrir augað en myndbandið er tekið upp á hinu víðfræga Louvre safni í París. Í Lestinni í dag rýnum við í nýtt tónlistarmyndband hjónanna Beyoncé og Jay Z og sláum á þráðinn til Æsu Sigurjónsdóttur, dósent í listfræði við Háskóla Íslands um þetta listræna myndband.
Rapparinn XXXtentacion var skotinn til bana í Florida á mánudag, aðeins 20 ára að aldri. Hann var ein skærasta stjarna hinnar svokölluðu Soundcloud-rappsenu - ágengrar, lyfjaðrar og tilfinningaþrunginnar jaðarrapptónlistar. Það sem spilaði þó ekki síður hlutverk í frægð rapparans var ótrúleg hegðun hans, vímuefnaneysla, geðsjúkdómar og ógeðfellt ofbeldi sem hann v... |