|
Description:
|
|
Augu heimsins beinast að Rússlandi um þessar mundir. En af nokkrum ástæðum. Margir búast eflaust við að ég tali hér um Heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem nú fer fram þar í landi - en aðrir vegna þess að heimsmeistaramótið í breyttum stjórnmálum hefur nú staðið yfir í landinu í 8 ár.
Það er að minnsta kosti niðurstaða bandaríska sagnfræðingsins Timothy Snyders en hann gaf á dögunum út nýja bók sem ber nafnið Road to Unfreedom, eða Vegurinn til helsis. Í bókinni fer Snyder, fremur myrkur í máli, djúpt ofan í saumana á alræðistilburðum Rússlands og pólitísk áhrif sem færast frá austri til vestur. Við rýnum í bók Snyders í Lestinni í dag með Sigurbjörgu Sigurgeirsdóttur, doktor í stjórnsýslufræðum við Háskóla Íslands.
Tónlistarhátíðin Secret Solstice verður sett í dag í fimmta skiptið. Í Laugardalnum koma fram tugir tónlistarmanna úr ótal áttum næstu fjóra daga og Davíð Roach Gunnarsson stiklar á því stærsta í dagskránni og fjallar um átta atriði sem Lestin mælir sérstaklega með.
... |