Search

Home > Lestin > Ástin FYRIR tíma Tinder og Chet Baker
Podcast: Lestin
Episode:

Ástin FYRIR tíma Tinder og Chet Baker

Category: Society & Culture
Duration: 00:59:11
Publish Date: 2026-04-20 17:03:00
Description: Í nokkrar vikur hefur Lóa verið að ræða við fólk um ástina og ástarleit á stafrænum tímum, í innslögunum ástin á tímum Tinder. En hver voru lögmál ástarinnar í kringum aldarmótin 1900. Sigriður Kristín Þorgrímsdóttir sagnfræðingur, skrifaði bókina Piparmeyjar - Fröken Thora og saga einhleypra kvenna á Íslandi sem er að miklu leiti byggð á bréfaskriftum Thoru Friðriksson (1866 – 1958) til systur sinnar. Systirin Ida var gift og átti börn en Thora var yngsta systirin og hafði það hlutverk að annast aldraða foreldra sína, sem var algengt hlutskipti yngstu systra. Hennar draumar og þrár urðu að víkja fyrir hag stórfjölskyldunnar. Sigríður er gestur í 8. þætti af Ástinni á tímum Tinder, sem við gætum nú kallað Ástin fyrir tíma Tinder. Svo pælum við í tónlist og tímanum. Bjarni Daníel færir okkur innslag þar sem um eitt þekktasta lag bandaríska trompetleikarans og djassöngvarans Chet Baker og hvernig það hefur haft mótandi áhrif hann á þremur ólíkum augnablikum á ævinni. Og svo rifjum við upp goðsagnakennda tónleika Chets Baker í Reykjavík árið 1985. Við heyrum brot úr gömlum þætti eftir Vernharð Linnet þar sem hann ræðir við einn skipuleggjanda tónleikanna, Jónatan Garðarsson, og hljóðfæraleikarana þrjá sem léku með Baker: Kristján Magnússon, Svein Óla Jónsson og Tómas R. Einarsson.
Total Play: 0

Users also like

100+ Episodes
The Snorri B .. 200+     10+

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Samfélagið 10+     1
600+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6