Search

Home > Lestin > Dystópíska myndasgan Huldufólk, ritstkoðun á ameríska TikTok
Podcast: Lestin
Episode:

Dystópíska myndasgan Huldufólk, ritstkoðun á ameríska TikTok

Category: Society & Culture
Duration: 00:55:36
Publish Date: 2026-02-05 17:03:00
Description: Árið 2061 nær golfstraumurinn ekki lengur til Íslands, þorskstofninn er hruninn, flóttafólk streymir til landsins, óstjórn ríkir og glæpagengi og stríðsherrar berjast um völdin - já og það er alltaf rigning. Grímuklætt fólk á mótorhjóli stelur mikilvægum kassa frá líftæknifyrirtæki, og ungur tæknimaður lendir í klóm mannræningja.Einhvern veginn þannig er hefst ný íslensk myndasaga sem kom út hjá Froski útgáfu í desember. Huldufólk nefnist bókin og á bakvið hana standa teiknarinn Fannar G. Gilbertsson og höfundurinn Gunnar Birgisson - sem starfar sem lögfræðingur í Texas í Bandaríkjunum. Við ræðum við Fannar og Gunnar um myndasögur og niðurbrot samfélagsins Nú í janúar breyttist eignarhald á samfélagsmiðlinum Tiktok í Bandaríkjunum, en um langt skeið hafa bandarísk stjórnvöld viljað færa það úr höndum kínverskra eigenda, fyrirtækisins Bytedance, enda mikil tortryggni í garð þeirra og grunsemdir um áhrif kínverskra stjórnvalda. Um leið og nýir eigendur - sem eru nátengdir Donald Trump - tóku við varð umtalsverð breyting á virkni forritsins. Notendur héldu því meðal annars fram að algóryþminn virtist dempa dreifingu á færslum tengdum Epstein-skjölunum og mótmælum gegn útlendingalögreglunni ICE í Minneapolis. Við ætlum að fræðast um þetta, heyra hvort þetta hafi áhrif á íslenska notendur, og almennt um það hvernig Tiktok virkar í mismunandi heimshlutum. Tryggvi Freyr Elínarson, þróunarstjóri og sérfræðingur tæknilausna hjá Datera, útskýrir stöðuna. Tónlistin í þættinum er frá Coby Sey og Láru.
Total Play: 0

Users also like

100+ Episodes
The Snorri B .. 200+     10+

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Samfélagið 10+     1
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6