Search

Home > Lestin > Grok vill tala um þjóðarmorð, skrímslamjólk SiGRÚNar, bréf til frænku
Podcast: Lestin
Episode:

Grok vill tala um þjóðarmorð, skrímslamjólk SiGRÚNar, bréf til frænku

Category: Society & Culture
Duration: 00:55:41
Publish Date: 2025-05-28 17:03:00
Description: Undir lok síðasta árs kom út platan Monster Milk, sem er fyrsta breiðskífa tónlistarkonunnar Sigrúnar Jónsdóttur, sem á sviðinu kallar sig einfaldlega SiGRÚN. Sigrún er þó alls enginn nýliði heldur hefur gefið út fimm stuttskífur undir eigin nafni undanfarinn áratug, en hún hefur einnig unnið sem hljóðfæraleikari, söngvari og pródúser, og spilað undir með Sigur Rós, Björk og Florence and the machine svo einhverjir séu nefndir. Monster Milk fékk Grammy-verðlaun íslensku grasrótarinnar, Kraumsverðlaunin, og í kvöld fagnar Sigrún plötunni með útgáfutónleikum í Iðnó. Við ræðum við Sigrúnu í Lest dagsins. Einar Hugi Böðvarsson flytur okkur sinn fyrsta pistil í Lestinni. Meðal þess sem kemur við sögu er spjallmennið Grok sem vill aðeins tala um þjóðarmorð á hvítum í Suður Afríku, gervigreindarsmíðaðar bækur á Amazon og lítill vængbrotinn þrastarungi. Næstu vikur ætlum við að fylgjast með bréfaskriftum frænkanna Helgu Daggar Ólafsdóttur og Sölku Snæbrár Hrannarsdóttur. Í fyrsta bréfinu ræða þær meðal annars bréfaskriftir og valdaleysið sem þær upplifa varðandi hryllinginn á Gaza.
Total Play: 0

Users also like

100+ Episodes
The Snorri B .. 200+     10+

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Samfélagið 10+     1
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6