Search

Home > Lestin > Metnaðarfull skólahljómsveit og forn-grísk heimspeki
Podcast: Lestin
Episode:

Metnaðarfull skólahljómsveit og forn-grísk heimspeki

Category: Society & Culture
Duration: 00:55:38
Publish Date: 2025-05-22 17:03:00
Description: Árið 2005 kom út fyrsta platan með hljómsveit Benna Hemm Hemm, 12 laga plata samnefnd tónlistarmanninum. Síðan þá eru liðin 20 ár og Benni kennir nú tónlist í Hagaskóla, og Ingi Garðar Erlendsson, básúnuleikari í hljómsveitinni, stýrir þar skólahljómsveitinni, Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar, SVoM. Á laugardag ætla SVoM og benni að leiða saman hesta sína og leika plötuna í heild sinni á tónleikum í Háskólabíó. Mér lék forvitni á að vita hvernig indí-fólk krútttónlist fyrsta áratugarins færi ofan í unglinga dagsins í dag og kíkti niður í Hagaskóla. Alkibíades var einhver alræmdasti stjórnmálamaður Grikklands til forna, einstaklega fagur, hrífandi og vel að máli farinn. Hann leiddi Aþenu út í tilgangslaust stríð og endaði á því að gera út af við lýðræðið í borgríkinu. Fyrir jól kom út íslensk þýðing á samræðunni Alkibíades eftir Platón, en þar segir frá fundi heimspekingsins Sókratesar og stjórnmálamannsins unga. Við ræðum við Hjalta Snæ Ægisson, bókmenntafræðing, þýðanda og bókaútgefanda.
Total Play: 0

Users also like

100+ Episodes
The Snorri B .. 200+     10+

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Samfélagið 10+     1
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6