Search

Home > Lestin > Heimsókn til Sisimiut, OG Maco, eftirmálar HM95, óskarstilnefningar
Podcast: Lestin
Episode:

Heimsókn til Sisimiut, OG Maco, eftirmálar HM95, óskarstilnefningar

Category: Society & Culture
Duration: 00:56:11
Publish Date: 2025-01-23 17:03:00
Description: Fyrir þrjátíu árum síðan ríkti mikil bjartsýni og stórhugur meðal íslenskra handboltaunnenda, en þá, árið 1995 hélt Ísland einmitt heimsmeistaramótið í handbolta - fyrsta og eina skiptið sem Ísland hefur haldið stórmót í boltaíþrótt. Að þessu tilefni höfum við verið að endurflytja örseriuna “Þegar Ísland hélt stórmót” sem við Anna Marsibil Clausen gerðum hér í Lestinni fyrir nokkrum árum um þetta sögulega mót - mót sem var mjög umdeilt á sínum tima, og er það kannski enn. Í þætti dagsins heyrum við fjórða og síðasta þátt seríunnar og þá verður rætt um afleiðingar og eftirmála keppninnar. Við heyrum líka um bandaríska rapparann OG Maco sem lést í lok síðasta árs, en hann var rétt rúmlega þrítugur. Maco spilaði á Íslandi árið 2017 og vakti mikla athygli fyrir sviðsframkomu sína. Þórður Ingi Jónsson minnist rapparans og ræðir um hann við Lexa Picasso. Katrín Helga Ólafsdóttir tónlistarkona og pistlahöfundur í Lestinni ferðaðst til Sisimiut á vesturströnd Grænlands í desember í fyrra og kynnti sér land og þjóð. Í dag flytur hún okkur pistil um það hvernig þjóðarsálin kemur henni fyrri sjónir: litaval á húsum, skammdegið, jólaljós, kóramenning, mótmæli vegna foreldraprófa, endurvakning gamalla hefða, Allt þetta og margt fleira kemur við sögu í innslaginu. Við nefnum líka tilnefningar til Óskarsverðlaunanna sem voru kunngjörðar fyrr í dag.
Total Play: 0

Users also like

100+ Episodes
The Snorri B .. 200+     10+

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Samfélagið 10+     1
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6