Search

Home > Lestin > Séð og Heyrt-áhrifin, gamalt danskt lesbískt málverk á Íslandi
Podcast: Lestin
Episode:

Séð og Heyrt-áhrifin, gamalt danskt lesbískt málverk á Íslandi

Category: Society & Culture
Duration: 00:58:37
Publish Date: 2025-01-13 17:03:00
Description: Glans- og slúðurtímaritið Séð og heyrt var stofnað 1996 og kom út í 20 ár til ársins 2016. Blaðið sagði fréttir af frægðarmennum og skemmtanalífi og var frá upphafi umdeilt en gríðarlega vinsælt. Í gær fór í loftið á Stöð 2 fyrsti þátturinn af sex í sjónvarpsseríu eftir Þorstein J. um tímaritið: Séð og Heyrt, sagan öll. Við ræðum um blaðið við annan af tveimur ritstjórum blaðsins á fyrstu árum þess, Bjarna Brynjólfsson. Bertha Wegmann var dönsk listakona. Hún er fædd árið 1846, var hátt skrifuð á sínum tíma enda fyrsta konan sem varð hluti af dönsku akademíunni en eins og fleiri konur á árum áður, féll Wegmann fljótt í gleymsku og varð ekki skrifuð inn í listasöguna. Frægðarsól hennar hefur þó risið aftur á undanförnum árum, þá sér í lagi eftir stóra yfirlitssýningu á höfundarverki hennar í Danmörku fyrir nokkrum árum. Einhverra hluta vegna eignaðist Listasafn Íslands fjögur verk eftir Wegmann eftir lát hennar. Við kynnum okkur málið nánar í þætti dagsins. Umsjón: Kristján og Anna Gyða Tónlist í þættinum: Flash Callahan - Do you know the Truth Doechii - Denial is a River Charlie XCX og Caroline Polachek - Everything is Romantic John Maus - Hey Moon
Total Play: 0

Users also like

100+ Episodes
The Snorri B .. 200+     10+

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Samfélagið 10+     1
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6