Search

Home > Lestin > Besta afsögn ársins, Julie Byrne, goðsagnakenndir eyðimerkurtónleikar
Podcast: Lestin
Episode:

Besta afsögn ársins, Julie Byrne, goðsagnakenndir eyðimerkurtónleikar

Category: Society & Culture
Duration: 00:00:00
Publish Date: 2023-10-10 17:03:00
Description: Risafréttir úr íslenskum stjórnmálum. Bjarni Benediktsson hefur sagt af sér sem fjármálaráðherra. Snemma í morgun birtist álit umboðsmanns Alþingis á sölu ríkisins á hlut sínum í Íslandsbanka í fyrra. Pabbi Bjarna var meðal þeirra sem keyptu hlut í bankanum. Umboðsmaður segir Bjarna hafa verið vanhæfan. Og Bjarni bregst við með að segja af sér. Sumir hafa túlkað þetta sem snjallan pólitískan leik hjá teflon-Bjarna sem sé núna að setja pressu á Svandísi Svavarsdóttur og ætli svo bara að verða utanríkisráðherra, en margir aðrir hafa hrósað honum fyrir að axla ábyrgð, og fyrir virða lýðræðislegar stofnanir - þó hann sé ósammála þeim. Við ætlum hins vegar að rýna í sjálfa afsagnarræðuna, orðin. Árið 1983 voru haldnir þrennir tónleikar í Mojave eyðimörkinni í Kaliforníu þar sem margar af framsæknustu rokksveitum þess tíma komu fram: Sonic Youth, Einstürzende Neubauten og Minuteman. Þessi goðsagnalegu tónleikar, Mojave Exodus, eru oft sagðir hafa lagt grunninn að tónlistarhátíðum á borð við Burning Man og Coachella. Maðurinn á bakvið tónleikana var Stuart Swezey, en hann er viðfangsefni nýrrar heimildamyndar sem nefnist Desolation Center. Þórður Ingi Jónsson útsendari Lestarinnar í Los Angeles ræddi við Stuart um tónleikahald á pönkárunum. Hildur Maral Hamíðsdóttir fjallar um nýja plötu bandarísku indí-kassagítarsöngkonunnar Julie Byrne, The Greatest Wing. Plötu sem er kláruð í skugga fráfalls hennar helsta samstarfsmanns og kærasta Erics Littman.
Total Play: 0

Users also like

100+ Episodes
The Snorri B .. 200+     10+

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Samfélagið 10+     1
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6